ég veit að það hefur verið gert mikið af svona trölla þráðum undanfarið. En vill einhver útskýra fyrir mér hvað er þetta þunga rokk er. Eina sem ég sé úr þessu eru óþroskaðir einstaklingar að ýta undir ófélagslega hegðun.

Þetta veldur því bara að börnin okkar einangri sig.
sjálf er ég ung móðir, sonur minn er bara sem betur fer of ungur til að hafa vit á tónlist, hinsvegar er það yngri bróðir minn sem ég hef áhyggjur af.

hann hlustar á svona “dauða rokk” eins og hann vill kalla það. Og eina sem hann gerir er að hlusta á þessa djöflatónlist rífast við foreldra okkar og sitja inní herbergi með kveikt á kertum.

ég leita nú til ykkar “þunga rokkara” sem er orðið of seint að bjarga, gerið það hjálpið bróður mínum hann er of ungur til að falla í þessu endemis vitleysu!