Langar mig að ræða um almenna hegðun og kurteisi hér á þessu blessaða áhugamáli.
Þannig er það að mig langaði að breyta nafni mínu í mitt eigið nafn svo að það væri hægt að hafa hugmynd um hver ég væri og að ég væri ekki “lame” að fela mig bakvið eitthvað nickname.
En þá!
Byrjar tiltekin manneskja að kalla mig öllum illum nöfnum ef að ég tek nú bara beint úr texta sem hann skrifaði:
“Eitthver pollvagnefinn, ófyndinn og óþroskaður hálviti”
Þessi manneskja hefur ekki sent mér eitt einasta skilaboð um nafnið mitt sem ég ber á huga og fer að drulla yfir mig.
Finnst mér að svona ætti ekki að viðgangast hér á þessu áhugamáli sem kallast metall.
Finnst mér við allir vera nógu þroskaðir til þess að ræða svona mál eins og menn.