Sælir og sælar, dömur og herrar.

Nú höfum við í Atrum hent glænýju lagi á myspace síðuna okkar. Lagið heitir “Ýmir” og er þetta einn af ávöxtum okkar frá upptökum sem hafa verið í bígerð síðan í sumar.

Við tókum þetta upp í Big Pig stúdíóinu hjá honum Gunnari Cortes(i) en þegar upptökurnar voru u.þ.b. hálfnaðar tókum við þá ákvörðun að gefa þetta ekki út í efnislegu formi, vegna óánægju með sánd og tónlistarlegrar frammistöðu, heldur frekar að skella svona 2-3 lögum á netið og drífa okkur aftur i stúdíó snemma á nýju ári. Eftir að hafa haft þetta lag til hlustunar í rúman mánuð ákvað ég að ég myndi ekki bíða lengur með setja þetta á netið því mig dauðlangar að heyra komment því það er ýmis tilraunarstarfsemi í gangi þarna sem hafa verið vafamál í hausnum á mér.

www.myspace.com/atrumiceland

Það eru stórar líkur á að þriðja lagið bætist svona rétt um og yfir áramótin og þá munu einnig koma endurmixuð og bætt upptaka af “Secular” sem og þessu lagi.

Endilega tjáið ykkur um þetta.

Cheers!