>>>>> ÞUNGAROKKSPLAGGAT http://www.taflan.org/viewtopic.php?t=32576 <<<<<<<<<<<<


Okkur er sönn ánægja að tilkynna að Momentum og Retron, góðir félagar og hljómsveitir sem við lítum upp til í tónlistarlegu samhengi, ætla að fagna með okkur og sjá til þess að þetta sé þess virði að rífa sig frá skjánum og koma á alvöru þungarokkstónleika.

Kostar slikk inn, Chainlike Burden (hin margrómaða þungarokksskífa) verður til sölu á aðeins 1000kr. Verðum líka með 4 tegundir af bolum, nýja hettupeysu og mjög sjaldgæfa sjötommu. Verður þetta goss mögulega á slikk líka.

Vonumst við til að sjá sem flest ykkar við þetta tækifæri. Okkur þætti vænt um það. Munum headbanga djúpt og halda glösum hátt á lofti.


Sjáumst


I ADAPT