Ég var svona að spá hvort að einhver metal bönd af höfuðborgarsvæðinu væri til í að slást í för með okkur úr Atrum í tónleika ródtripp til Akureyrar til að halda þar væna metal tónleika. Við hefðum þá í huga að gera þessa hugmynd að veruleika snemma á komandi ári.

Ég hef ekki ennþá talað við neinn varðandi tónleikastað eða planara varðandi þetta heldur held ég að það væri skemtilegt og hressandi að nokkur bönd héðan frá kæmu saman og svo 1-2 akureyrsk myndu spila einnig. Sjálfur er ég mjög spenntur fyrir Húsinu á Akureyri, frábær tónleikastaður, hef spilað þar tvisvar (á tveimur staðsetningum, bæði skiptin mjög góð) og það væri gaman ef einhver tengdur Húsinu myndi kommenta.

En bönd, sendið meil til mín í sigarni@gmail.com eða bara á huga eða bara einhvern veginn ef þið viljið slást í för og við skoðum þetta mál.