Já nýjasti diskurinn með Amorphis kom út síðustu mánaðarmót og ég verð bara að segja að hann sé frábær. Ljúfur og léttur, kemur þungt inn sem þar á við, byrjaði að minna mig svolítið á Opeth á kafla en þeir eru samt einstakir, það sem ég hafði áður hlustað á með þeim var frekar leiðinlegt fannst mér og var heldur aldrei búinn að hlusta á Eclipse en þetta kom mér bara á óvart. Mæli með því að fólk tjékki á þessu.