Jamm Brain Police,Sólstafir og Zodogan munu troða upp á Gauknum næstkomandi laugadagskvöld 22. sept !

Verið er að fagna edurkomu Gulla á gítarinn og öðru sem hefur borið á garð okkar í Brain Police undanfarið svo sem útgáfusamningur við bandaríska fyrirtækið Small Stone og jú 3 vikna tónleika ferðar sem við höldum í 27. sept. ásamt sænsku sveitini Dozer.

Við munum koma víða við í tónleikaferð okkar svo sem þýskaland,Holland,Belgía,Sviss og Austurríki,17 dagar og 17 gig !

Gulli er kominn mjög sterkur aftur inn og við höfum sjaldan verið sprækari og munum við taka góða blöndu af okkar rokki og annara.

Rokkið hefst um kl. 23

Aðgangseyrir 1000 kr já það held ég !