Geggjað þýskt black metal band!
Ég kynntist bandinu þegar ég hlustaði á splittið þeirra með hljómsveitinni Luror.
Fór beint og sótti plötuna ,,…and the Gruesome Returns with Every Night“ sem er alveg frábær plata.
Geggjuð riff, geðveikur söngur og flottir textar.

Hljómsveitin var stofnuð árið 1994 og árið 1995 gáfu þeir út sitt fyrsta demo ,,Born in the Mystical Forests of Sorrow”. Þetta sama ár spiluðu þeir með hljómsveitum eins og Dark Funeral,Dimmu Borgir,Ved Beuns Ende.
Árið 1996 gerðu þeir split með hljómsveitinni Dunkelgrafen og árið 1997 gáfu þeir út annað demo að nafni ,,Delictum Exceptum“.
Í 4 ár lá svo hljómsveitin í ,,dvala” og gaf ekkert út fyrr en árið 2001 en þá gerðu þeir split með hljómsveitinni Luror og aftur með Wolfsmond.
Tvö ár liðu og kom þá út 4 way split með hljómsveitunum Luror,Darkmoon Warrior og Shadows Towards My Sky sem var gefið út í 666 eintökum, hversu kvlt er það.
Núna fór eitthvað loksins að gerast hjá þeim og árið 2004 gáfu þeir loksins út heilan disk að nafni ,,…and the Gruesome Returns with Every Night“. Flott og drungaleg plata sem er full af hatri og viðbjóð, eitthvað fyrir alla black metal unnendur.
Þetta sama ár kom út annað 4 way split og skartaði sú plata hljómsveitunum Ad Hominem,Leviathan(USA) og Funeral Winds, sú plata bar hið fallega nafn ,,Black Metal Against the World”.
Núna 13.júní gáfu þeir út plötuna ,,Funeral Mass" og gefur hún seinn plötunni ekkert eftir, allavega miðað við fyrstu hlustun.
Ætla ekki að gefa endanlegt álit á þeirri plötu, en hún lofar mjög góðu.

Hljómsveit sem vert er að kynna sér!

Live myndband :
http://www.youtube.com/watch?v=n5SGNgyW0nY

Myspace:
http://www.myspace.com/eternityhorde

Get líka uploadað plötunum báðum ef áhugi er fyrir þeim.
Sendið mér bara einkapóst.

ps. örugglega fullt af málfræði og stafsetningar villum þarna en mér er sama.

Bætt við 11. september 2007 - 00:50
Funeral Mass
http://www.megaupload.com/?d=3194J318
http://shop.w-t-c.org/shop/product_info.php/info/p735_Eternity—Funeral-Mass-CD.html

…and Gruesome with Every Night
http://rapidshare.com/files/33723093/…and_the_Gruesome_returns_with_every_Night.rar.html
http://shop.w-t-c.org/shop/product_info.php/info/p222_Eternity——and-the-Gruesome-returns-with-every-Night-CD.html

Endilega kaupið þetta svo!