Gríska hljómsveitin Dodsferd gaf út plötuna ,,Fucking your Creation“ núna á dögunum.
Þessi plata er án efa ein af mínum uppáhalds plötum í ár.
Platan kom mér gríðarlega á óvart enda fyrsta platan hans ,,Desecrating the Spirit of Life” ekkert sérstök að mínu mati.
Þetta tónlistarverkefni stendur af Wrath eins og hann vill kalla sig og hefur hann gefið út 2 demo,2 breiðskífur og 1 split með hljómsveitinni Ganzmord.

Hrár og kaldur black metal með smá rock ívafi.
Flott gítar riff og flottar trommur í takt við geðveika texta.
Tekur nokkrar hlustanir til að koma sér inní þetta, en ef þú hefur áhuga á góðum black metal ættiru að hafa áhuga á þessu.
Eitthvað sem þið verðið að kaupa eða sækja í gegnum netið.

Þegar ég hlusta á plötuna fæ ég alveg hroll, það er eitthvað við þessa plötu sem lætur mig hlusta á hana aftur og aftur.
Ekkert mikið annað svo sem hægt að segja um þessa plötu en þetta.

Hægt er að sækja plötuna hér:
http://rapidshare.com/files/19493934/Dodsferd-2007-Fucking_Your_Creation_Promo_-_metalarea.org__by_chu.ra