Ég hef tekið eftir því að þeir sem fýla Burzum eru oft rakkaðir niður með “hvernig geturðu stutt morðingja?”

Mig langar bara að spyrja þetta sama fólk, vitið þið meira um málið en aðrir?

Ég hlusta ekki á burzum, og NEI ég er ekki 13 ára gelgja sem dýrka Varg Vikernes. Fyrir mér er hann bara einhver útlendingur.
En ég verð alltaf jafn pirraður þegar fólk skítur yfir litla óþroskaða krakka með boðskapi sem minnir á hræsni biblíunnar án þess að það viti neitt meira um málið en aðrir.

Ég held að enginn viti með vissu hvað gerðist kvöldið sem Varg drap Euronymous, og þessvegna ætti fólk aðeins að slaka á alhæfingunum.

Ef að Euoro hefði verið sterkari, og drepið Varg, þá er ég frekar viss um að margir hér væru að predika yfir mayhem-persónudýrkendum.

Þetta er bara það sem ég hef tekið eftir. Ég er alls ekki að reyna að vera með kjaft, bara búa til umræðu um þetta.

Og annað, ég er ekki hræddur við að hlusta á rök annara, og ef að einhver kemur með góðar og gildar ástæður fyrir því að ég ætti að hata Varg Vikernes frekar en Jóhannes í Bónus þá skal ég glaður hlusta á þann mann.

Þetta eru bara svona próflesturs vangaveltur.
Vó hvar er ég?