Vinkona mín sem er algjör týpísk gelgja, svona sem málar sig og hugsar bara um útlitið og hlustar á Fm tónlist og eina hljómsveit Muse, sagði í dag einn ótrúlegan hlut. Eitthvað sem ég bjóst aldrei við því að heyra frá þessarri manneskju, hún sagði allt í uppúr þurru þegar ég setti Lambið á fóninn, "djöfull eru trommurnar nettar og þetta dududu(dobblarinn hratt) og mér brá óendnalega mikið við að heyra frá þessarri manneskju þar sem hún hefur aldrei hlustað á metal og varla heyrt hann. Ég varð náttúrulega mjög ánægður að heyra þetta og svo setti ég Decapitated á og hún heillaðist enn og aftur af trommunum.