Sælir.

Mér datt í hug að spyrja ykkur hérna á /hljodfaeri hvort einhverjir ykkar séu að spila á Aldrei Fór Ég Suður, Rokkhátíð Alþýðunnar á Ísafirði núna á morgun og á laugardaginn.

Sjálfur er ég að spila í 2 atriðum, annað með einhverri lúðrasveit sem ég veit raunar ekki mikið um, en hitt er 3 manna band að nafni “Tríó Geira Talent” (ekki spyrja :) ) þar sem ég sé um trommurnar.

Ég veit að ég er búinn að vera með leiðindi við fólk hérna á þessu áhugamáli núna í einhvern tíma og vil því segja að við verðum að spila um hálf 5 leytið á laugardaginn ef einhverjir ykkar verða á staðnum og langar til að grýta súru káli í mig.

Rokk og ról. :)