Hafið þið einhvern tímann lennt í því að sjá nýja könnun og það er verið að spyrja t.d. hvort einhvað band sé gott?
Ykkur finnst bandið vera sæmilegt, fínt eða gott og einu jákvæðu svarmöguleikarnir eru “JÁÁÁÁÁ!!!!” eða “JÁ MARH ÞEIR ERU BESTIR!” ?

T.d. könnunin sem er í gangi núna sem snýst um hvort okkur hugurum finnst Dimmu Borgir vera góðir.

Mér finnst Dimmu Borgir vera mjög gott band, en ég er ekkert öskrandi FOKK JÁ ÞEIR ERU MOÐERFOKKIN BESTIR MOÐERFOKKER!

Allt í lagi..þið kannist við þetta?
Málið er að mér finnst svona svarmöguleikar svo viðbjóðslega pirrandi.

Afhverju getur sendandinn ekki bara skrifað;


Nei
Mjög góðir
Lélegir
Fínir
Galabía
Sæmilegir
Hræðilegir
Bestir
Hef ekki heyrt um þá (hvað er ég að gera á /metall?)
Hef ekki hlustað á þá

…….eða eitthvað annað einfalt og gott.