Jæja, er fólk orðið spennt fyrir þessu? Ætlar fólk ekki að mæta svona annars? bara 1000 kall inn… Það kostar 900 kall í bíó núorðið og það er bara bíómiðinn…

Mig hlakkar persónulega mikið til að sjá Severed Crotch spila með nýja gítarleikaranum. SC með einum gítarleikara er flottur pakki, en SC með tveimur er algjört heaven.

Einnig hlakkar mig mikið til að sjá Perlu, því að eigin sögn eru þeir orðnir miklu meira progressive en lögin á Myspace gefa til kynna og það eru góðar fréttir í mínum kokkabókum.

Jájá, mig hlakkar til að sjá allar sveitirnar þarna. Þetta verða pottþétt kvöld!

Bætt við 28. mars 2007 - 07:19
Og auðvitað datt kallinn í gamla gildru… það er auðvitað Ég hlakka til, ekki mig hlakkar til…
Resting Mind concerts