Ég var að lesa á http://www.burzum.org
(Síða þar sem eru bréf og fréttir frá honum sjálfum sem han skrifar í fangelsinu)

Þar var ein grein, þar sem hann talar um að margir aðdáendur hafa sent honum bréf, og aðdáendur sem lenda í sama fangelsi, eru að segja honum að þeir finna hvergi Burzum plötur í Noregi.
Eftir að Varg fór í fangelsið eftir að hafa drepið Euronymous og brennt þessar kirkjur, að þá hefur verið BANNAÐ allt sem tengist burzum í Noregi, heimalandinu hans.
Svo var líka tónlistarsjónvarpstöð, þar fólk gat sent inn sms hvaða myndbönd þau vildu sjá, og mjög margir hefðu sent inn beiðni um Burzum myndbönd, en stjórnendur stöðvarinnar væru búin að neita tilvistar þessara myndbanda.

(Svo á þessari síðu er hægt að lesa SÖNNU söguna frá drápi Euronymous, sem Varg sjálfur skrifaði, og mæli ég með að allir Burzum aðdáendur lesi þessa grein, til að heyra hinn RÉTTA sannleika, þar sem allt sem kom í blöðunum er ekkert nema uppspuni og lygi.)

Þetta finnst mér mjög ósanngjarnt gagnvart Varg og aðdáendum hans. Þar sem það er algjörlega búið að afskrifa Burzum í Noregi og úr Metalsögu Noregs, það er eins og hann hafi aldrei verið til. Og þessi snillingur á alls ekki skilið að fá þessa meðferð.

Euronymous átti skilið að deyja, finnst mér, þar sem hann hafði planað að drepa Varg. Þannig valið var á milli lífs Vargs og Euronymous, og á Varg meiri rétt á að lifa. Þetta var algjörlega 50/50 situation. Euronymous var líka bara aumingji og ekkert annað, og fékk hann ekki mikla virðingu frá neinum í Norsku metalsenunni.

Bætt við 12. desember 2006 - 14:52
ATH. MITT álit á Varg. Ég ætlast ekki til að allir séu sammála, þar sem flestir sem ég þekki álíta hann aumingja og ekkert annað.