Ein af þeim sveitum sem komu mér í Hard Rokkið upphaflega (fyrir einhverjum 18-20 árum!) var sveitin Steelheart. Melódískt Hard Rokk gerist lítið betra en fyrsta plata þessarar sveitar, plata sem inniheldur lögin She's Gone, I'll Never Let you Go, Everybody Loves Eileen og Can't Stop Me Lovin' You, ásamt fleirum slögurum. Söngvarinn í sveitinni Miljenko Mike Matijevic, er einn af allra ALLRA bestu söngvörum metalsins allra tíma. Mike þessi söng hlutverk Mark Wahlberg í myndinni Rockstar og lagið We All Die Young úr myndinni er lag Steelheart, sem kom út fyrst árið 1996.

Nú er ný plata á leiðinni og sveitin er búin að gefa út teaser EP plötu sem inniheldur 3 lög af nýju plötunni, ásamt einhverjum fleirum lögum. Það er hægt að hlusta á þessi lög á myspace síðunni þeirra.

http://www.myspace.com/steelheartmanagement

Þrusu lög alveg!
Resting Mind concerts