Ég ætla allavega að skella mér á nýja Killswitch Enage diskinn þegar hann kemur út í nóvember. Ég átti alltaf eftir að kaupa mér Ghost Reveries með Opeth (kom út í fyrra). Ætli maður verði að skella sér á Puritanical Euphoric Misanthropia með Dimmu Borgum líka.

Þá held ég að þeir diskar sem ég ætla að kaupa mér séu upptaldir. Annars var ég að spá í hvort þið hafið einhverja diska í huga sem þið ætlið að kaupa eða mælið með að ég kaupi.