Jæja merkilegir hlutir gerast enn á Íslandi þó að það komi Kárahnjúkum ekkert við!

Rokk/Metal kvöld Transsexual Daycare, Silent Rivers og Perfect Disorder (áttu að spila í þessari röð) var stoppað í miðju setti hjá Silent Rivers vegna þess að nágrönnum Rauða Ljónsins þótti tónlistin vera of hátt stillt.
Á jafn litlum stað og RL er, ekkert hljóð eða söngkerfi þá verður að spila frekar hátt til að trommarinn sem í raun situr örlítið fyrir aftan alla magnara heyri hvað um er að vera þannig að hann geti verið með líka.

En Þetta kvöld var blásið af og Perfect Disorder fengu ekki einu sinni tækifæri til að stíga á svið.

Ef halda á Rokk/Metal tónleika, finnið annan stað en Rauða Ljónið!

Takk fyrir þeir sem komu á staðinn!
Silent Rivers
BC Rich NT Virgin, BC Rich NJ Deluxe Warlock5, BC Rich Warlock NJ Series(1986-'88), BC Rich ASM Pro Neck-thru, Jackson Kelly KBX