Ég verð bara að segja að ég skil ekki hvernig fólk getur í alvörunni horft á þetta með góðri samvisku! Ég get skilið þetta lið sem horfir á Idol og það crap, en hvernig fólk sem stundar þetta áhugamál og er t.d sívælandi yfir því hvað Metallica hafa selt sig (sem by the way, þeir hafa gert það en það þurrkar ekki út glæsta fortíð þeira) getur horft á þetta sorp, með þeim allra mestu sell-outs sem ég hef séð. Tommy Lee hefur nú alltaf verið eingöngu á yfirborðinu þannig að það er skiljanlegt að hann geri þetta en hinir 2, sem höfðu nú ágæti fortíð í tónlistarbransanum eru að hóra sig svona algjörlega út fyrir peninga, og það bitnar mest á tónlistinni. Þessi þáttur snýst ekkert um tónlist og sú staðreynd að Tommy Lee er þarna ætti að vera nógu góð sönnun fyrir því að þessi þáttur snýst ekki um annað en peninga. Að mínu mati ættu allir alvöru málmhausar að hundsa þennan þátt!

Og mer finnst það ekkert passa að tala um þennan þátt sem kemur metal ekkert við hérna á þessu áhugamáli, þannig að mér finnst að fólk ætti bara að pilla sér með þessa korka á /realitytv þar sem það á heima.

Ég vil síðan koma því á hreint að þetta eru mínar skoðanir og engra annarra. Endilega segið mér hvað ykkur finnst, og ykkur er fullkomlega frjálst að koma með skítkast, en mér er líka fullkomlega frjálst að hundsa það.
In such a world as this does one dare to think for himself?