Ég var að flakka á mp3.com og þá rakst ég á þessa hljómsveit. Ég er mikill fan af industrial metal og þeir voru skráðir sem þannig hljómsveit. ÞEssi hljómsveit heitir CROSSBREED og sama stendur af 6 meðlimum. Lögin sem ég náði með þeim eru úber góð. Ég get svo svarið ég hef aldrei heyrt i janf kröftugri hljómsviet. Lögin sem hægt er að ná í með þeim á mp3.com heita:

Pure energy - Nafn með rentu. Þetta er eitt kröftugasta lag sem ég hef heyrt. Hún tekur þig um punginn og sleppir alls ekki.

Underlined - Trommuleikurinn hér er hreint ótrúlegur. Ég get ekki almennilega lýst þessu lagi.

Seasons - Stysta lagið og er líka laveg eins og hin tvö ótrúlegur kraftur.

Þeir hafa gefið út einn disk og heitir hann Synthetic Division. Ég hef ekki heyrt í honum en miðað við þessi lög þá getur hann ekki verið neitt nema góður.

Ég mæli stekrlega með þessari hljómsveit og hún er ein sem á að fylgjast með í framtíðinni.