Sú ákvörðun var tekin eftir tónleika þessarar norsku sveitar á föstudagskvöldið að henda upp all ages tónleikum fyrir þá, enda kom bandið verulega á óvart, eins og m.a. er haft eftir Sigga Pönk og Birki I Adapt. Bandið er verulega þétt og einstakt á þessum tímum þar sem hvert bandið á fætur öðru hljómar eins og öll hin böndin. Tónlist Quiritatio er einlæg, frá hjartanu og unique.

Búið er að staðfesta Changer í upphitun. Er að bíða eftir svari frá þónokkrum böndum í viðbót, auk þess sem áhugasöm bönd geta haft samband við mig um að spila!

Einungis 500 kall inn!!

Húsið opnar milli 19 og 20, en ákveðnar tímasetningar verða tilkynntar mjög fljótlega þegar fjöldi banda er þekktur.
Resting Mind concerts