1. Þegar fólk heldur að það standi “Nike” á “Nile” Bolnum mínum.

2. Þegar fólk er með bögg út í Metalhljómsveitir sem þeir hlustuðu einu sinni á.

3. Brutal Death Metal sýndarmenska

4. Þegar fólk grefur upp bönd sem að hafa mögulega aldrei farið út fyrir bílskúrinn og eru að gera Crap tónlist með Crap Segulbandstæki, og fólk segist fíla þá í tættlur, því engin annar þekkir þær.

5. Þegar fólk skilur ekki fegurð flokkunarkerfisins og afneytar því og talar bara um “þungarokk”, eða öllu heimskara “Dauðarokk”

6. Fólk sem kúkar á litla patta sem pósta korka um Slipknot, því þeir voru að byrja að fíla þá.

7. Fólk sem afneytar stefnum og hljómsveitum sem þeir fíla ekki sem “Ekki Metal”.

8. Fólk sem tengir ekki aðeins eigið útlit við sinn tónlistarsmekk, heldur dæmir aðra útfrá því líka.

9. Tr00 & Kvlt og allt annað “Leet-speak” innan þungarokks. Guðanna bænum haldið þessu í Counterstrike bara

10. Allt skítkastið og Wise ass kommentin sem eiga eftir að koma á þessa útrás.

Jæja, þá er þetta komið. Ekki gert til að móðga einn né neinn. En þetta gefur mér smá útrás og vonandi skapar áhugaverða umræðu hérna :)