Þann 20. apríl munu verða haldnir tónleikar í höfuðstað metalsins, þar sem sjálfir Black Sabbath spiluðu hér forðum daga, Akranesi.
Á þessum tónleikum munu hljómsveitirnar Helblindi, Stálregn og The Metal Factory stíga á stokk og leika ljúfa tóna. Nei hvað er ég að rugla? Þarna verða hávaði dauði og djöfull hafðir í hávegum:D
Tónleikarnir verða haldnir í félagsheimilinu Hvíta Húsinu sem er staðsett að Skólabraut 9.

Við hvetjum alla til að fjölmenna á þennan viðburð!