Það hafa hvorki fleiri né færri en 26 manns skráð sig í Wacken ferð sumarsins og gengið að jólatilboðinu. Þetta á eftir að verða alveg rosalegt, í fyrra gengu 18 manns að þessu jólatilboði, þannig að það lítur út fyrir mikla fjölgun.

Eins og staðan er núna eru eftirtaldar sveitir staðfestar á Wacken:

Die Apokalyptischen Reiter
Born From Pain
Cannibal Corpse
Celtic Frost
Children Of Bodom
Emperor
End of Green
Finntroll
In Extremo
Korpiklaani
Nevermore
Soilwork
Subway To Sally

Það er enn möguleiki á að skrá sig í þessa ferð, jólatilboðið rennur út 30. desember, en í þeim pakka er rútuferð Köben - Wacken og til baka, miði á Wacken 2006 og official wacken t-shirt. Verðið á þessu er 13.000. Eftir 30. desember dettur þetta jólatilboð úr gildi og þá mun þessi pakki (án bolsins) kosta 15.200.

Til að skrá sig sendið þá email á thorsteinn “at” restingmind.com með eftirfarandi upplýsingum:

Nafn
Kennitala
Heimilisfang, póstnr og staður
Heimasími / GSM
email / msn login (ef slíkt er fyrir hendi)
ekki væri heldur verra að vita hvað þið heitið á huga.is/taflan.org

Þorsteinn
Resting Mind concerts