Þetta er nýi diskurinn með þessum sænsku snillingum. Ég hef reyndar ekkert verið voða hrifinn af þessu bandi hingað til, en þessi nýi diskur er mjög góður og það bara á fyrstu hlustun. Sveitin spilar melódískan metal eins og hann gerist hvað bestur, og söngvarinn minnir oft á Dio í gæðum (ekki endilega sami tónn í þeim þó). Þessi sveit hefur svipuð áhrif á mig og Dream Evil, en plata þeirra The Book of Heavy Metal er alveg rosaleg.

Þið getið heyrt og séð myndbandið við lagið Fools Never Die hérna: http://www.centurymedia.de/century/mainarea/video.aspx?id=nocturnal_rites__fools_never_die.rm

eða stærri (60 Meg) hérna: http://130.240.223.48:81/video/fools.mpg
Resting Mind concerts