Djöfull voru þetta sjúkir tónleikar! Byrjaði með hinni leiðinlegu Gavin Portland (bara ekki minn tebolli) og svo kom Potentiam sem voru að mínu mati pínu slappir framan af en tóku geðveikt við sér í síðustu 2-3 lögunum og urðu rosalegir.

Síðan komu Severed Crotch.. .shit, þvílík snilld. Það var svo fáránlega góð stemmning og Severed voru svo ógeðslega góðir að þetta voru bara einhverjir best tónleikar sem ég hef farið á! Ingó var svo líka svo hress (datt m.a. á mig og var á hvolfi hluta af tímanum og svona :P), það var mjög fyndið.

Þetta var bara geðveikt!

Hverjir voru þarna? Hvernig fannst ykkur?
Endless Power? This is Perfect! - Bryan Fury