Mér finnst að margir hérna ættu að kynna sér hljómsveitina The Haunted en ég held að margir séu að fara á mis við hana því alltaf þegar talað er um svíametal hér á huga gleymist hún.
The Hunted er ábyggilega besta svíametals bandið í dag en hún samanstendur af 5 meðlimum þar á meðal tvíburunum Anders og Jonas Björler en þeir voru áður í At The Gates(hættu í kringum 1996 og stofnuðu The Hunted). Ég mæli með disknum Made Me Do It en hann er snilld hvert og eitt einasta lag.