Næstkomandi laugardag (menningarnótt um kvöldið) hefði “Dimebag” Darrell Abbott orðið 39 ára hefði hann lifað. Í tilefni af þessu eru margar útvarpsstöðvar að fara tileinka daginn honum og það verður líka eitthvað live húllumhæ á dean-guitars.com.

Ég skora á alla Metalhausa að gera hvað þeir geta til að heiðra Dimebag á afmælisdaginn hans þó það sé ekki með öðru en að blasta smá Pantera!

Sjálfur ætla ég að drekka honum til heiðurs (skot af Jägermeister, einhver?). Ef þið ætlið ekki að gera það segi ég að allir taki a.m.k. eitt skot eða einn bjór honum til heiðurs.

Og áður en fólk byrjar að væla yfir því að ég sé að tala um að drekka útaf þessu þá er góð ástæða fyrir því. Í fyrsta lagi hefur það nú löngum tíðkast að skála fyrir látnum mikilsmennum eða vinum og hin ástæðan, sú sem er mikilvægari er sú að Dimebag sjálfur vissi ekkert betra en fá sér nokkra kalda í góðra vina hópi. Þeir sem drukku með honum segja að eftir að maður var búinn að drekka einu sinni með honum og Vinnie Paul, bróður hans, þá var maður orðinn vinur hans og ef maður var orðinn vinur hans var maður orðinn eins og fjölskylda hans. Ég er viss um að Dimebag myndi ekki geta hugsað sér neitt annað betra til að heiðra sig en að drekka sína skál. Og ég er viss um að ef hann vissi að nokkrir eldheitir aðdáendur hans væru að drekka honum til heiðurs á Íslandi finndist honum það frábært.

“Get'cha pull of that, man!”
Endless Power? This is Perfect! - Bryan Fury