Þótt það hljómi ótrúlega er mjög stutt síðan ég uppgötvaði þessa snillinga.
Ég var að kaupa mér disk með þeim sem heitir “the end complete” og þetta er með því betra sem maður hefur keypt í langan tíma.
Ég var með gæsahúð alla plötuna og stóð sjálfan mig af því headbanga eins og brjálæðingur(ekki það að ég geri það aldrei).
Þessi hljómsveit er gjörsamlega búin að heilla mig svo um munar og er ég að pæla í hvort einhver vissi eitthvað um þetta band.
Þá er ég að meina t.d. sögu í grófum dráttum,lista yfir allar útgáfur og bara allt sem þið vitið vel þeigið!
Ég verð að komast almennilega inn í þetta!