Margir hugsa eflaust með sér, hvað er verið að spurjast um offspring hér!
Ég ákvað að setja þetta hér því mér fannst Offspring tilheyra metal meira en rokki!
Allavega, þá er það ekki spurningin hér, heldur var ég að pæla í hvort einhver hefði heyrt í fyrsta disknum með þeim sem heitir einfaldlega The Offspring?
Ég hef alltaf fýlað Offspring, aðallega þá fyrri diska þeirra en hef aldrei heyrt í þessum, hann er búinn til 1989 (en gefinn út mun seinna) og hafa þeir alltaf haft þetta Trash Metal gen í sér, þess vegna var ég að pæla hvernig þessi diskur væri áður en ég kaupi hann.