Ældi blóði og hætti í Brain Police

Fókus fylgir DV í dag. Djammkortið, allt um bíómyndir, nýja tónlist, teiknimyndasögur og pistill um besta vin konunnar, eggið. Þá er einnig sagt frá dramatískum atburði á tónlistarverðlaununum í síðustu viku. Gítarleikari Brain Police ældi gerviblóði og lét sig falla í gólfið. Þetta varð til þess að hann er nú hættur í sveitinni.

Svo virðist sem langar samverustundir rokkaranna í Brain Police, sem hefur verið lýst sem best æfðu hljómsveit á Íslandi, hafi dregið dilk á eftir sér. Það sauð upp úr á æfingu fyrir Íslensku tónlistarverðlaunin í síðustu viku og eftir atriði sveitarinnar á hátíðinni hætti gítarleikarinn Gunnlaugur Lárusson alfarið í Brain Police.

Táknrænn dauði gítarleikarans

Gunnlaugur tók reyndar svo rosalegt hætt að það hlýtur að komast á lista yfir þau frægustu þegar fram líða stundir. Í lok athafnarinnar var strákunum snúið inn með viðhöfn á stóra sviði Þjóðleikhússins og þeir spiluðu lagið Mr. Dolly. Þeir voru tilnefndir fyrir rokkplötu ársins, söngvara, umslag og sem flytjendur. Athygli vakti að Gunnlaugur var íklæddur hvítum maharishi-klæðum, sem hann fékk keypt á sig á Indlandi.

Eins og sönnum rokksveitum sæmir endaði lagið á gítarsólói með tilheyrandi sveiflum. Gunnlaugur byrjaði þá allur að hristast og skekjast og blóð að vella úr munni hans. Hann ældi því út úr sér, yfir gallann og yfir Jenna söngvara og hné að lokum niður. Þar voru síðustu tónarnir spilaðir. Leikhúshefðin ýtti undir dramatíkina og táknrænn dauði gítarleikarans varð að veruleika. Verst að fleiri urðu ekki vitni að honum. Því tökuvélum Sjónvarpsins var beint annað á meðan og reykurinn á sviðinu mikill …

Afganginn af fréttinni, þar sem m.a. er sagt frá framtíðarplönum Brain Police og Gunnlaugs í kjölfar hættsins er að finna í Fókus, sem fylgir DV í dag.


http://www.visir.is/?PageID=90&NewsID=30501
indoubitably