Góðann daginn

Samkvæmt heimasíðu Mastodon, www.mastodonrocks.com, eru þeir að fara að spila í Skandinavíu dagana 6. - 11. mars 2005:

03/06/05 Copenhagen, Denmark
03/07/05 Malmo, Sweeden
03/08/05 Stockholm, Sweeden
03/09/05 Oslo, Norway
03/11/05 Helsinki, Finland

Eitt land finnst mér þó vanta á þessa eflaust ágætu dagskrá hjá þeim, og það er okkar yndisfríða Ísland!!!

Ég vil þ.a.l endilega biðla til þeirra sem sjá um að bóka svona snillinga (ekki veit ég hvernig fara á að því) að reyna að fá þá til Íslands, t.d á leiðinni heim til U.S.A eða eitthvað. Þetta eru síðustu ‘tour’-dagsetningarnar sem staðfestar hafa verið á heimasíðu þeirra.

Meira veit ég ekki, en endilega ef þú ert að bóka, þekkir einhvern sem er að bóka eða whatever, værirðu þá ekki endilega til í að gera eitthvað í þessu.

Ég veit að það eru eflaust margir að hugsa um þetta, og það gæti vel verið að það sé einhver nú þegar, eða fyrir löngu síðan farinn að hugsa um þetta, en maður bara verður að vera ‘on the safe side’.
What is love? Baby don't hurt me, don't hurt me, no more…