Dimebag Darrell fyrrverandi gítarleikari Pantera og gítarleikari Damageplan var skotinn til bana meðan á tónleikum Damageplan stóð. Einnig dó annar meðlimur bandsins en það er ekki vitað hver það er ennþá allaveganna.
Á meðan tónleikunum stóð kom maður upp á svið öskraði e-ð á Dimebag og skaut svo margsinnis, einnig skaut einhverja fleiri áður en hann var drepinn af lögregluþjóni. Ennþá eru mjög óljósar fréttir af þessu. En þetta er sorgardagur í sögu metals. Það er sorglegt að þetta skulu getað komið fyrir og ekki skuli vera betri öryggisgæsla á tónleikum.
R.I.P Dimebag