Eru alvöru metalhausar ekki þessir með sítt og úfið hár, í leðurjakka og leðurbuxum eða rifnum gallabuxum ?
Er þetta farið að verða þannig að þeir sem hlusta á popp einsog Slipknot eru meiraðsegja kallaðir metalhausar? (sbr. greinin “Það er kúl að vera metalhaus”)

Persónulega verð ég ýmist reiður eða hlæ þegar einhver lítill strákur í víðri Korn hettupeysu og “skopparafötum” og með hár niðrað eyrum, skipt til hliðar, kallar sig metalhaus.

Þetta er ekki spurning um að þykjast vera neitt ógeðslega “true”, heldur er þetta spurning um að halda ekki að maður sé eitthvað sem maður er ekki.

Svo er jú munur á “rokkari”, “pönkari” og “metalhaus”.

Hvað finnst ykkur ?