Vinnufélagi minn lét mig fá eintak í gær en eins og þið kannski vitið þá er búið að leka plötunni á netið.Ef þið hafið heyrt þetta stöff látið mig vita hvernig ykkur finnst.

Mér finnst þetta ágætis plata,verður betri með hverri hlustun enda er hún mjög fjölbreytt og maður heyrir alveg að lögin eru samin á mismunandi tíma. Það eru flott gítarsóló inn á milli og trommurnar nokkuð þéttar ekkert svona newmetal drasl heldur klassískt þungarokk.