Málið er að ég sendi inn fyrirspurn á www.farfuglinn.is 5. mai til að athuga hvort þeir yrðu með sölu miðanna á sínum vef, þar sem ég bý á Fáskrúðsfirði þá kemst ég ekki á staðina til að kaupa þá. Ég fékk meil um hæl til baka sem stóð “Takk fyrir, pöntun þín á Metallica hefur verið móttekin! Tónleikamiðarnir verða sendir innan fárra daga í ábyrgðarpósti á það heimilisfang sem þú gafst upp.” ég hugsaði með mér “FRÁBÆRT” Og þar sem það voru enn 10 dagar í puplic miðasöluna sjálfa þá var ég ekkert að stressa mig á þessu, en svo núna fæ ég engin svör, enga miða, þeir svara ekki símanum, né svara tölvupósti.
Þannig, nú sit ég enn á Fáskrúðsfirði, miðalaus með engin svör. Ég er afar reið út í klúbbinn, tel þá vera að ganga á bak orða sinna með þessu.
Er einhver þarna sem á til miða? Ef svo er endilega hafið samband;
Guðrún K. 897 4373 - gkv@simnet.is