Heaven Shall burn - Antigone
þýskt metalcore með dauðarokksáherzlum og smá svíakeim. Pottþétt riff & hárbeittir textar um kúgun og réttlæti. Ólafur Arnalds sér um intro og outro á plötunni sem eru með klassískum áherzlum. Inniheldur 2 bónus-ábreiðulög

Finntroll- Nattfödd
Það hefur gengið á ýmsu hjá bandinu Finntroll sem er eins og nafnið bendir til; finnskt tröllametal. Eftir að hafa misst fyrrum söngvara og bassaleikara heldur bandið áfram ótrautt og heldur fast við sína fyrri stefnu. Þjóðlegar melódíur og black/deathmetal, textar um náttúrufyrirbrigði, goðsagnir,vættir og tröll sem ráðast á mannfólkið þó sérstaklega hina kristnu). Sungið er á finnlandssænsku. Eins konar öfgafull útgáfa af gömlu dönsunum… eða polka/sirkusmetall ef maður mætti komast þannig að orði.

Orphaned land- mabool+bonus cd
Ótrúlega fjölbreytt plata frá þessu framúrstefnumetal bandi sem kemur frá Ísrael. Er þetta þeirra fyrsta plata í 7 ár. Miðausturlensk hljóðfæri og melódíur er notaðar stundum sem krydda plötuna og gefa henni sérstæðan blæ. Clean raddir, kven raddir, dauðarokksöskur, kór. Gítaróló, píanó, frábærar lagasmíðar, epísk lög. Allt þetta og meira. Akústik bónusdiskur fylgir með. Sem sagt stútfullt af góðgæti.

Into eternity- Buried in oblivion

Hér er í senn progressive metal og dauðarokk,thrash og ballöður. Ótrúleg fjölbreytni í þessum drengjum sem koma frá sléttum Saskatchewan fylkis Kanada. Þessi sveit hefur verið sífellt að batna og hér eru þeir búnir að fullkomna sinn stíl og hæfni. Hljóðdæmi:

At the gates- Slaughter of the soul
Eitt lykilverka Svíametals. ATG uppá sitt besta. Inniheldur 6 bónuslög á þessari endurútgáfu. Skyldueign extreme thrashmetalhausa.

Nile - Amongst The Catacombs Of Nephren-Ka
Fyrsta plata bandaríska dauðarokksbandsins Nile sem hefur egypskar þemur og áhrif í sínum verkum. Fullt af alls kyns flækjum, stríðsöngvum og dimmrödduðum dauða. Epískt dauðarokk…

Immortal - Pure Holocaust

Önnur plata þessara Norsku blackmetal guða. Plata full af ís, jöklum fjöllum og kulda. Frábær plata
og eiginlega algjört MUST í blackmetal safnið!

Decapitated- the negation

3 skífa þessara pólsku pilta. Miskunarlaus árás frá upphafi til enda á tæknilegu og vélrænu dauðarokki sem fær flösur til að þeytast. Inniheldur bónuslagið Lunatic of gods creation( e. Deicide)

Enslaved - Mardraum

Enslaved með plötuna sem markaði nýja tíma þessa magnaða bands. Mun meira experimental en fyrri plötur þeirra. Þarna fundu þeir sándið sem ég elska við Enslaved, allavega nýja dótið þeirra. þetta misty sánd, Ein besta plata þessara félaga. Hrein Klassík!


Marduk - Funeral Marches and Warsongs

Magnað dvd sem inniheldur 2! heila tónleika með þessari goðsagnakenndu sænsku blackmetal hljómsveit. Þetta er eitthvað sem allir
allir blackmetalistar ættu að eignast!!


FULLT VÆNTANLEGT!

hafið samband við mig eða í email gaddurmetal@hotmail.com

www.gaddur-distro.tk