Góðan daginn metalhausararnir mínir…
Ég er búinn að vera fylgjast með Metallica umræðunni hérna á huga undanfarna daga og ég hef tekið eftir því að þónokkuð margir eru að fara á tónleikana 26.maí á Parken í Kaupmannahöfn.
Sjálfur er ég mikill aðdáandi Metallica(mér finnst ekki rétt að fallbeygja orðið og segja Metallicu) og er einmitt að fara á þessa tónleika 26.maí!!!!
Ég vildi bara spurja hvernig þið fenguð ykkar miða??
Pöntuðuð þið á billetmaskinen.dk eða eitthvað annað???
Hvernig miða fenguð þið??(sjálfur er ég með miða á Plænen stå sem kostaði 500 danskarkrónur, sem sagt ég verð niðri á vellinum)
Og eruð þið komin með miðann ykkar í hendurnar??

Kv. Sigma