Nú ætla ég að segja ykkur staðreyndina afhverju Jakob hefur valdið þessu óþarfa veseni!
Að sjálfsögðu er hann einn af þessum leiðindanáungum sem hafa gaman af því að gera lítið úr skoðunum annara eins og hefur sést hér áður og allir spakir menn ættu að hafa tekið eftir, en þetta er ekki meginmál þessarrar greinar minnar eða öllu heldur fyrirlitningarbréfi. Ég er aðilinn úr skólanum hans sem að hann setti sig í leðurstígvélin af. Að sjálfsögðu voru þau mátuð í algjöru óleyfi!!
Ég hef þekkt þennan dreng í rúml. ár og hefur hann ekki valdið neinu öðru en leiðindum.
Leiðindi hans út í Black Metal byggjast á því að hann átti tilkall til þess að ganga til liðs við Black Metal hljómsveitina CREMATORIUM sem stofnuð er af mér og er ég einn helsti meðlimur hennar. Þetta byrjaði þannig að ég gekk fram á hann einn daginn og lýsti hann þá fyrir mér að hann hefði nýlega fengið sér diskinn: SONS OF NORTHERN DARKNESS með hljómsveitinni IMMORTAL og lýsti áhuga sínum á honum fyrir mér sem byggðist að sjálfsögðu allur á haugalygi. Um þetta leyti vorum við að leita að aukagítarleikara sem hefði getað leikið á móti Leadgítarleikaranum okkar (Nístingi). Ég gerðist svo vitlaus að bjóða honum heim til mín í inntökuprufu, en þá hafði ég að sjálfsögðu ekki séð svona slæma hlið á honum áður. Þar sáum við að hann hafði engan veginn tónlistarlega gáfu til þess verks (því til stuðnings nefni ég m.a. að hann gat ekki einu sinni gert power chord sem flestir geta lært í fyrstu tilraun og er mjög algengt í Black Metal og í raun öllum Metal, og ekki heldur gert tremolo picking). En það var erfitt að finna gítarleikara og var þetta auðveldur gítarleikur þannig að við losuðum okkur ekki við hann strax. Nokkrum dögum síðar hittum við hann aftur og hafði ég þá frétt af hegðun hans, dónaskap og leiðindum við aðila sem hafa gott vit á músík a.k.a. Black Metal. Ég var snöggur að varpa honum með skömm og reyna að forða mínum kenningum frá honum eins fljótt og mögulegt var. Fyrsta grein hans um áðurnefndan IMMORTAL disk: SONS OF NORTHERN DARKNESS innihélt lítilsvirðingu á texta Black Metalstefnunar sem eiga það til að snerta fortíð og lífshremmingar höfundarins. Sömuleiðis innihélt hún háð á flest lög disksins nema örfá og einnig skírskotun í það að IMMORTAL væri barnaleg, fáránleg hljómsveit samansett af mönnum með skert veruleikaskyn og klisjukenndar hugmyndir, sem er svo fjarri raunveruleikanum að það verður ekki borið fram. Svör hans voru beinar árásir á þá sem gagnrýndu grein hans. Og endaði hann enn sem komið er með því að skrifa algjöra lítilsvirðingar yfirlýsingu á Heimspeki Black Metal kenningarinnar, sem ég get ekki séð að hafi gert honum nokkurn skapaðan hlut. Þannig að ef þessi drengur talar um að einhver sé barnalegur og með stæla ætti hann svo sannarlega að líta rækilega í eigin barm. Tilgangur og afleiðing þessarar greinar er einfaldlega sú að við sem erum útvaldir og gefnir þeim eiginleikum að geta sinnt Svartmálmi af alvöru ættum að standa saman í því að þagga niður í svona ræflum sem skríða upp á yfirborðið aðeins í þeim tilgangi að eyðileggja og valda leiðindum á málstað okkar. Það er rétt sem Ulvur heldur fram að Black Metal þurfi ekki að vera eingöngu Satanískt eins og afstyrmið hann Jakob virðist halda fram. Það getur ýmist verið heiðið eða algjörlega trúlaust og í mínu tilfelli gengur það út á fornaldarsiði og ásatrú. Það er sömuleiðis vel gert hjá 999 að líkja Jakobi við Sandro Beyer sem stóð í svipaðri vitleysu á sínum tíma eins og Jakob gerir nú.
“Afsakaðu, en er þetta ekki ástæðan fyrir því að Burzum mun vera nauðgað í sturtu af sínum fellow nasista föngum, næstu 20 árin”.
Þetta er það sem Jakob sagði um Burzum, hljómsveitina sem hann þóttist kunna vel við fyrir stuttu síðan, þannig að þið sjáið að þessi persóna er ekki nálægt því að geta rökstutt eigið mál. Eftir að Jakob les þessa grein getur hann mótmælt, gagnrýnt og niðurlægt þessa grein en við sem vitum betur ættum að geta séð í gegnum hræsni hans og lygar!!




SORG from CREMATORIUM.