Jæja það er búið að vera nóg að gera hjá KoRn síðastliðna mánuði. Þeir hafa verið að vinna á nýrri plötu, það sem ég hef heyrt best að hún komi í September. En KoRn aðdáðendur þurfa ekki að bíða svo lengi eftir að heyra nýtt efni, því að núna 23. júní mun ný smáskífa með þeim koma í búðir. Lagið mun vera í myndinni Tomb Raider 2: The Cradle of Life, en ekki á sjálfum Tomb Raider 2 disknum. Lagið heitir Did My Time, og hefur lagið verið spilað nokkrum sinnum á einni útvarpstöð í Bandaríkjunum. Lagið hefur verið lekið út á netið en þó ekki í sérstökum gæðum ennþá. Ég er mikill KoRn aðdáðandi, og hef heyrt lagið og get sagt að þetta er stórkostlegt lag. Það er alls ekki hægt að líkja það við eitthvað. En allavega sjötti diskurinn hjá KoRn að koma, þannig að KoRn aðdáðendur geta beðið spenntir.

Kv. OrkaX