Fyrst þegar þessi stöð kom þá skildist mér að það ætti að vera fjölbreyttara rokk en á öðrum stöðvum. Núna er ég búinn að hlusta mikið á þessa stöð á ýmsum tímum sólarhringsins og finnst þetta vera ansi mikið rokk sem heyrist annars staðar. Mér finnst að það sé lítið þungarokk þarna og mikið af rokki sem fær örugglega spilun á bylgjunni og radio x. Hvernig finnst fólki þessi stöð og er hún nógu góð í sambandi við að spila þungarokk eins iron maiden, megadeth og slayer.