Maður er búin að bíða og bíða eftir þessari plötu og í marga mánuði er metallica.com búin að vera að tísa manni hægri vinstri. Maður les umfjallannir og maður fær meirisegja stundum að heyra örstutta búta hér og þar…þetta er að fara með mig!!! ég er ekki að meika að bíða! Aldrei áður hef ég hlakkað jafn mikið til að hlusta á einhverja plötu í fyrsta sinn ALDREI! Eg elska Metallica og allt þeirra stöff og ég bara er ekki að höndla þessa bið!

En þarna liggur einmitt kötturinn grafinn lifandi…maður verður að passa sig…þó svo að ég fýli allar Metallica plöturnar frá kill til load þá verður maður að passa sig að gera sér ekki of miklar væntingar…þó svo að ég sé næstum viss um að þessi plata standist þær þá verður maður að passa sig á að verða ekki fyrir vonbrigðum því það er það ömurlegasta í heiminum!

Hlökkum öll til…en ekki of mikið… :p
Nei engin undirskrift hjá mér