Ég hef tekið eftir því á Kaaza að þar er oft hægt að finna lagið Hunger, og á það að vera Megadeth og Metallica. Veit einhver hvort þetta er satt? Þetta hljómar nauðalíkt Metallica og söngvarinn hljómar nákvæmlega eins og Hetfield! Mér finnst samt soldið skrýtið ef það sé með Metallica því ég hef ekkert heyrt um það áður. Þetta er mjög gott þungarrokks lag, með þeim betri sem ég hef heyrt í langann tíma. Svo ef einhver veit eitthvað meira um þetta, væri gaman að fá einhverjar upplýsingar um það.