Út er kominn geisladiskurinn “Tími á það” með Tríói Bjölla klikk. Um er að ræða 7-laga demo með þessum vitleysingum sem helst vilja láta kalla sig músíkalska grínista.

Diskurinn inniheldur meðal annars smelli einsog “Farðu í bað” og “I can be your hero” en einnig minna þekkt lög, s.s. “Flöðeskúm” og “Faðir vor”.

Diskurinn er til í takmörkuðu upplagi og fæst einungis í Geisladiskabúð Valda, Laugavegi 64 (Gengið inn frá Vitastíg, skáhallt fyrir ofan Knickerbox).
<br><br><a href="http://www.tbk-online.tk">Tríó Bjölla klikk</a>, því þú þarft að fara í bað