Ég er mikill metal aðdáandi og hlusta mikið á tónlist og kaupi alla diska sem að mér langar í. En það eru nokkrar hljómsveitir sem að er bara ekki hægt að fá diska með hérna í plötubúðum! T.d Skífan sem að er nú afsakanlegt þeir geta ekki einu sinni flokkað diskana sína rétt maður finnur t.d. iron maiden í pokk rekkunum. Eina búðin sem að eitthvað fæst í er Geisladiskabúð Valda á Vitastíg(Valdi lengi lifi). En ég er að reyna eignast diska með hljómsveituum eins og t.d METAL CHURCH, HELLOWEEN CHILDREN OF BODOM og GAMMARAY. Þetta bara kemur ekki til landsins nema þá kannski ein og ein Helloween diskur. En allavega er einhver þarna úti sem að getur reddað mér kannski diskum með þessum böndum? Eða veit hvernig best er að eignast þá?