Já já - átjánþúsundasta skiptið sem Brain aflýsir tónleikum. Samt, eins og vanalega þá er þetta ekki koks í okkur. Jæja, ekki meira helv. væl…

Af gefnu tilefni þá viljum við í Brain koma því á framfæri að við munum EKKI spila á tónleikum á Grand Rokk þann 26. (annan í Jólum).

Það er búið að auglýsa þetta á allavega tveim stöðum (forsíðan á mbl í dag og eitthvað rugl) sem er ekkert alltof gott mál þar sem þetta er alveg off.

Við erum hinsvegar með massívt áramótarokk í smíðum og ef allt gengur upp verða nánari upplýsingar gefnar er nær dregur

Svo eiga allir að fara á /www.smekkleysa.net/audio/ og ná í Symphony með Ólympíu og hlusta á með Jólasteikinni.

Þökkum kærlega fyrir Jólagjöfina sem við fengum frá rokkhundum landsins - fyrsta sætið á Radíó X aðra vikuna í röð :D

Gleðileg Jólin frá öllum í Brain Police - nema kannski Hödda því hann er heiðingi og hatar Jólin.

Stay Rock.