KillSwitch Engage Dómur um frábæra plötu (tekið af dordingull.com)

KillSwitch Engage - KillSwitch Engage
[Ferret Records] 2000

http://www.KillSwitchEngage.com
http://www.ferretstyle.com

Fyrir all löngu síðan þá var ég að leita mér að tónlist á netinu og fann upplýsingar um þetta frábæra band KillSwitch Engage. Ég valdi bandið sem hljómsveit vikunnar og var hlustaði á þetta all oft á netinu. Í byrjun ársins fékk ég löngun í að hlusta á bandið aftur og fannst þetta hljóma enn betur en áður. Það var svo fyrir stuttu að ég sá diskinn með bandinu í lítilli plötubúð í london.. ég varð bara að kaupa diskinn.

Þessi diskur grípur mig alveg frá byrjun. Er pura metal, eins og hann gerist bestur.. nema með áberandi áhrifum frá hardcore tónlist. Söngvari sveitarinnar öskrar texta sveitarinnar af þvílíkri geðveiki í blandi við að frábæra söngstíl. Ég get ekki skilið ef fólk fílar þetta band ekki.. ég bara missi stundum stjórn á mér þegar ég er að hlusta á þetta. Á tíðum lestarferðum hefur þessi hljómsveit hjálpað mér mikið… það liggur stundum við að ég standi upp og öskri, headbangi og hoppi á restina af ferðegum lestarinnar þegar ég er að hlusta á þetta. Ég næ sem betur fer að halda stjórn á mér. Eini gallinn við diskinn er að hann mætti vera lengri.. það er að segja fleiri lög.. ég vill ekki að diskurinn hætti.

Diskurinn er brutal í anda Meshugga á köflum en róast samt stundum niður og fær man virkilega til að fá þetta á heilann… Metal aðdáendur athugið: Ef þið mögulegað getið þá skuluð þið redda ykkur þessum disk, kíkið á heimasíðu sveitarinnar og hlustið á tóndæmi.. þetta er frábært band.


—————–

Í viðbót við þetta má nefna að hljósveitin er tilbúin með nýja plötu sem verður gefin út í maí á Roadrunner útgáfunni. Þetta veðrur plata sem allir Metal aðdáendur verða að áthuga. Bandið er rosalega gott á skil að fá alla þá athygli sem hægt er að gefa þeim. EF ÞIÐ FÍLIÐ METAL ÞÁ ER ÞETTA FYRIR YKKUR!

Heimasíða bandins:
http://www.KillSwitchEngage.com