Viltu spila á Wacken? - Metal Battle 2010 - Skráning hafin Restingmind Concerts kynnir með gríðarlegu stolti:

WACKEN OPEN AIR - METAL BATTLE 2010 Á ÍSLANDI!

Yep. Það er komið að því. Wacken Metal Battle er handan við hornið!

Wacken Open Air er stærsta og virtasta þungarokksfestival í heiminum og hefur verið haldið sleitulaust síðan 1990. Íslendingar hafa verið að sækja þessa hátíð um langan tíma og hafa síðan 2004 farið m.a. á hátíðina í skipulagðri hópferð í gegnum Restingmind. Sú hópferð hefur farið sístækkandi síðan þá, frá 25 manna hópi 2004 upp í mest 80 manns 2008.

Árið 2004 stofnaði festivalið til hljómsveitarkeppni, Wacken Metal Battle, sem fólst í því að óþekktar sveitir sem ekki voru með hljómplötusamning upp á ermina gátu skráð sig til leiks og keppt innbyrðis í svæðisbundum undanrásum um rétt til að spila á sjálfu festivalinu. Þar fór svo fram lokakeppni þar sem sigurvegarar undanrásanna kepptu svo til að hreppa sigurlaunin.

http://www.hivenet.is/restingmind/pics/MetalBattle/2010/mb-small-2010.jpg

Í byrjun var einungis handfylli af undanrásum, en í ár er svo komið að 26 lönd munu halda undanrásir og hefur fjölgað um heil 7 lönd frá því í fyrra! Ísland tók einmitt fyrst þátt 2009 þegar hljómsveitin Beneath hlaut hnossið og spilaði á Wacken í kjölfarið. Þeir unnu að vísu ekki, en hafa í kjölfarið landað hljómplötusamning við MORDBRANN MUSIKK.

http://www.hivenet.is/restingmind/pics/MetalBattle/2010/Beneath-WOA.jpg
Beneath á sviðinu á Wacken 2009

Metal Battle Iceland
Þetta er einfalt mál. Opnað verður fyrir skráningu frá og með núna og verður íslenska undankeppnin haldin 13. mars á 2010 á Sódóma Reykjavík. Sigurvegarinn er valinn af dómnefnd eingöngu sem þýðir að áhorfendur taka ekki þátt í valinu. Unnið er að því að fá a.m.k. tvo erlenda aðila til að koma og vera hluti af dómnefnd. Lokakeppni Metal Battle er svo háð á W.E.T. sviðinu á Wacken dagana 5.8 - 7.8.

Skilyrði til þátttöku
* Bandið þitt er ekki með hljómplötusamning og er ekki á leiðinni að skrifa undir slíkan í náinni framtíð.
* Bandið þitt getur auðveldlega spilað 30 mínútna sett af frumsömdu efni.
* Bandið þitt spilar þungarokk. Wacken er þungarokksfestival sem rúmar svo gott sem allar gerðir af þungarokki, allt frá hard rokki yfir í argasta dauðarokk, og því er keppnin opin fyrir slíkt einnig.
* Sigurvegari íslensku undankeppninnar 2009 getur ekki tekið þátt aftur.
* Sveitir sem tóku þátt 2009 en unnu ekki mega taka þátt aftur.

Verðlaun
Sveitin sem stendur uppi sem sigurvegari Metal Battle á Wacken hlýtur eftirfarandi:
* Fyrstu verðlaun: Hljómplötusamningur við Wacken Records sem gildir fyrir allan heiminn. Samið verður við sigursveitina sérstaklega um ákvæði samningsins.
* Eins árs stuðningssamning (endorsement) við Washburn gítarframleiðandann og Eden bassamagnararisann. Sveitin hlýtur að auki tvo gítara, Eden 2x440W bassamagnarahaus og tvö 4x10 bassabox.
* Mapex Meridian Maple Go-Large trommusett.
* Eitt stk Marshall JVM 210 H gítarmagnara.
* 5 stk symbala frá Paiste.
* Réttinn til að spila á Wacken árið eftir sem eitt af númerum hátíðarinnar og möguleika á því að spila í undankeppnum Metal Battle 2011 í þátttökulöndunum.

Sveitirnar sem vinna sína undankeppni og fara á Wacken hljóta einnig eftirfarandi verðlaun:
* 1 stk Black Panther 14“ x 5.5” sneriltrommu í Black lacquered Maple frá Mapex.
* Sérstakan “friends of Washburn” samning og “friends of Eden” samning. Þessir samningar gera sveitunum kleift að kaupa Washburn og Eden græjur á alveg sérstökum kjörum og gildir í eitt ár.
* Íslenska sveitin fær líka að ferðast frítt með hópferð Íslendinganna frá Kaupmannahöfn og beint á Wacken í boði Livescenen.dk og Restingmind Concerts.

http://www.livescenen.dk/img/top-1.jpg

Sjá nánar um vinninga á www.metal-battle.com eða í þessu skjali hérna.

Skráning - umsókn um þátttöku
Þær sveitir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu skrá sig með því að senda kynningarpakka á Restingmind Concerts. Þær samþykkja um leið reglur keppninnar sem má finna á www.metal-battle.com.

Hægt er að skrá sig á tvo vegu:

1) Sveitir skrá sig með því að senda eftirfarandi:
* CD með a.m.k. 3-4 lögum. Ef diskurinn hefur fleiri lög, þá skal fylgja með ábending um þau 3-4 lög sem leggja á áherslu á. Hágæða mp3 útgáfur mega gjarnan fylgja með einnig.
* Mynd af sveitinni
* Upplýsingar um sveitina (bio)
* Contact info
á heimilisfangið hér fyrir neðan.

WOA Metal Battle Ísland
c/o Þorsteinn Kolbeinsson
Rafstöðvarvegur 33
110 Reykjavík

2) Skráning á netinu: Sveitir senda epk (Electronic press kit) í gegnum sonicbids.com með því að fara á þennan link: sonicbids.com

Athugið að ekki komast allar sveitir að sem senda inn umsóknir, þannig að það borgar sig að vanda sig við gerð umsóknanna! Stefnt er að því að velja einungis 6 sveitir í keppnina. Diskur með 3-4 lögum í kickass gæðum er t.d. mun betra en heill diskur í lélegri gæðum. Óþarfi er að nefna að flottur promo pakki með t.d. vel uppsettu kynningarblaði um sveitina (oft bara 1 vel uppsett síða með öllum nauðsynlegum upplýsingum, mynd, bio og contact info, heimasíðu o.s.frv.) er betra en að fá t.d. ómerktan disk og lýsingu um bandið á handskrifuðum pappír. Sama gildir að sjálfsögðu um þá epk pakka sem menn senda í gegnum sonicbids.

Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2010 með skráningaraðferð 1) en 8. janúar með skráningaraðferð 2).

Með kveðju,
The Wacken Team!
Resting Mind concerts