Snatan II kvöld á Café 22.

Þá er komið að því, að annað Snatan kvöldið verður haldið á 22. næsta fimmtudag þann 14 mars. Samningar náðust við eigendur og ert þetta núna orðið fastur liður (annann fimmtudag hvers mánaðar) í næturlífi Reykjavíkur borgar. Snatan er Alternative/Rokk/Metal kvöld þar sem tónlist af bestu gerð er spiluð allt kvöldið, snúður kvöldsins er DJ Chaos.
Stefnana er að hafa tilboð á veitingum á barnum og er næsta kvöld með
bjór + skot á 500 kr og einn rauðann (500 kjall) við inngang. Aldurstakmark er 18 ára og eru skilríki skilyrði.
Hugmyndir um live bönd eru á floti og er bara að sjá hvort að mæting/markaður sé fyrir þannig stemmara. Markmið okkar er að leyfa fólki að njóta góðs fílings með góðan öl og góða tónlist. Geðveikin hefst klukkan 21 og stendur til 01:00