Andlát DVD - Ný promo mynd Þetta margumtalaða DVD er í vinnslu, verið er að vinna efnið og nýverið var byrjað á coverinu.
Við erum svo drullu ánægðir með promo myndatökuna fyrir þetta að við getum ekki beðið með að birta hana, svo þið fáið smá preview af við hverju má búast útlitslega séð.

Myndin: http://www.flickr.com/photos/jonasval/3469845716/sizes/o/

Myndin er unnin af www.jonasval.com tékkið endilega á síðunni hans, veit að hann er mjög áhugasamur um að vinna með hljómsveitum að allskyns verkefnum.

Pakkinn eins og hann lítur út í dag mun innihalda m.a eftirfarandi:

- 4 laga EP með nýjum lögum
- “heimildamynd” með viðtölum og rugli
- einir heilir tónleikar, teknir upp í góðum mynd og hljóðgæðum
- Allskyns tónleika upptökur m.a frá allra fyrstu tónleikum sveitarinnar
- Sérstök umfjöllun um Evróputúrinn
- Ljósmyndir
- Textar
- og ýmislegt fleira sem kemur í ljós síðar

Hverjir munu gefa þennan pakka út verður tilkynnt síðar

Þetta verður einfaldlega nánast allt það sem Andlát hefur gert, líklegast munu “salt” og “mors longa” fylgja.

Áætlað er að reyna að koma þessu út á þessu ári, en þið vitið öll að eitthvað svoleiðis getur breyst, málið er að það er allaveganna verið að vinna í þessu núna.

Fylgist endilega með hérna, eftir því sem verkefnið fer lengra mun ég setja inn meira af svona previews.
_________________